Bloggarar:

Gagnagrunnurinn

Oddur
Una
Valinkunnur andans maður
Maack
Arent
Bragi
Neðra?m
Bjarney
F?fa
Frikki Steinn
Garðarsd?ttir
Herra Garðarsd?ttir
Norðdahl
Snowbear
Loveýsa
Kynm?ðir m?n
Edwalds & Buch
Jakob hinn Hv?ti
S?r?n
El?n L?a
Hreinberg
Allah o Akbar
Dixielanddvergurinn
Anna Karen

Hem?llinn m?lir með:

Veiðið með Hem?lnum
Kirkjan
P?finn
Handrit
Snillingar
Welcome to Royston Vasey
... Royston l?ka
The Hunger site
The Child Health site
The Rainforest site
The Animal rescue site
The Breast cancer site

Hemúllinn


Heim Gamalt Samband

þriðjudagur, apríl 26, 2005 :::
 
Hemúllinn er að hugsa um að fara að blogga aftur...hmmm...

::: posted by Hem?llinn at 21:06



laugardagur, júlí 03, 2004 :::
 
Ég er búinn að vera á launum undanfarið við það að liggja í nuddpotti á Flúðum. Varð svoldið þreytt á endanum svo ég ákvað að kíkja út á fimmtudagskvöldið þegar ég kom í bæinn. Fór á Kaffibarinn og hitti þar fyrir tvo Kana, Jack og Paul. En þó þeir hétu eins venjulegum nöfnum og hugsast gat voru þetta ekkert venjulegir Kanar. Þeir töluðu fjölda tungumála, voru ríkir og búa í Bagdad. Þar reka þeir útvarpstöð, dagblöð, bókaútgáfu ofl. Þeir gáfu mér íraska dínara með mynd af Saddam og heltu í okkur áfengi. Ýmislegt gerðist, en kvöldið endaði alla vega á hótelherbergi í Reykjavík hvar lögreglan beindi ljóskösturum í gluggann...

...svo var ég að fá meiri vinnu. Ég er núna kominn í vinnu við að bjarga heiminum, n.t. með Amnesty International.



::: posted by Hem?llinn at 20:36



laugardagur, júní 26, 2004 :::
 
Úrslit Sólbjarts voru í gær og var éwg beðinn um að "DJ-a"...ég hef þetta innan gæsalappa því ég telst varla DJ þegar ég nota bara Powerbook-inn inn. Þetta var samt fínt. A. Karlsson flutti skemmtilega oddadómararæðu, fornmáladeild vann og það gekk bara ágætlega að sjá um tónlistina. Það togast þó alltaf á, löngunin til að spila það sem ÉG vil heyra og þörfin til að spila það sem HINIR vilja heyra. Seinni hópurinn hefur hingað til alltaf fengið að ráða, fyrir utan svona eitt og eitt lag. Gat aðeins laumað Kraftwerk, Gus gus, Joy Division, New Order etc. Fór bara svo beint á Bergstaðastrætið og lagðist til hvílu.

Vaknaði svo í morgun, fór í konditorið og gerði svakalegan morgunmat: Spælt egg á brauð, beikon, eggjahræra, skinkuhorn og appelsínusafi. Ekkert sérlega hollt, en gott á svona morgnum. Það var líka ágætt að borða vel því ég átti langferð fyrir höndum...þurfti að fara í Kópavog (kaupstaður fyrir sunnan Reykjavík) að kjósa. Mér leið eins og höfðingjunum á þjóðveldisöld, sem lögðu í margra daga ferðir á Þingvelli til að hafa áhrif á þjóðmálin. Vantaði bara að ég tjadaði í Kópavogsgjánni (sem Baugur er að byggja yfir). Ég fór að velta fyrir mér hvernig staða forsetaframbjóðendanna væri á þeim tíma. Baldur hefði útlitið í allsherjargoðann, en giftur ambátt frá Bretlandseyjum...Óli grís er algjör mörður sem notar kænsku til að koma við kauninn á óvinum sínum...en svo væri Ástþór sennilega sigurstranglegastur af þeirri einu ástæðu að hann er jafn klikkaður og Egill Skallagríms, og myndi sennilega drepa andstæðinga sína í bræðiskasti og verða þar með sjálfkjörinn. En í kosningum 21. aldarinnar er það hr. Auður Seðill sem fær atkvæði mitt, og vonandi sem flest. Nenni ekki að þreifa ástæður þess e-ð mikið hér, annað en það að sigurvegarinn er 0ruggur en ég er ekki ánægður með hann og vil eiga minn þátt í að hann fái rassskellingu frá íslesnku þjóðinni.

Annars hitti ég trúbróður minn, Elmar Johnson, á djamminu í gær. Minntist á kikrjuvörðinn kvenmannsklædda við hann og hann sagðist þá hafa séð hann á háum hælum, í stretsbuxum og með tagl í miðnæturmessunni um síðustu jól. Magnað.

::: posted by Hem?llinn at 17:40



laugardagur, júní 19, 2004 :::
 


"The master is not yet married, nor do I think he ever will be"


Eins og margir vita sennilega á kallinn eftir að taka eitt stykki próf áður en hann verður stúdent. Prófið átti að fara fram nú í vikunni og útskrift þann 17. en af heilsufarsástæðum neyddist ég til að fresta prófinu og útskriftinni þ.a.l. líka. Ég hafði ætlað mér að vera rosalega þjóðlegur (þjóðlegur...þjóðdansafélagið hefur fært þetta orð á nýtt plan - ég er hvort eð er aldrei þjóðlegur nema í útlöndum) og útskrifast á 60 ára afmæki lýðveldisins. Það hefði verið gaman, og hefði bætt fyrir að missa af athöfninni í Háskólabíói, svo það var bömmer að þurfa að láta fólk vita að veislunni væri frestað. Af Þessum og fleirum (kann ekki að beygja þetta orð...djö...) orsökum var þeta ómerkilegasti 17. júní sem ég hef upplifað, í.þ.m. minnst "sautjándajúnílegi" 17. júní sem ég hef upplifað. Var búinn að vera að þræla mér út á næturvöktum og kom ekki heim fyrr en á hádegi þann 17. Eyddi því bróðurparti dagsins í svefn og missti af fjallkonunni, blómsveigunum og öllu. Þannig svaf ég yfir "Fistfull of Dollars" (ég hef orðið veikur af þeim leiðinda syndrome að geta ekki sofnað almennilega nema ég sé að horfa á sjónvarp) þar til ég var sóttur til föðurhúsanna í mat. Fór svo ekki í bæinn fyrr en upp úr 22 (missti af Nylon, bömmer) ásamt Birgi Pétri Þorsteinssyni, Liljuborgarbúa í heimsókn á Fróni. Þá var bærinn bara leiðinlegur. Reif á Arnarhóli, kalt, og e-r þreyta í kalli. Það sem stóð upp úr var soldið alls ótengt lýðveldisafmælinu. Ég sá mann í drag labba um bæinn. Ójá, karlmann í kvenmannsskóm; kjól; síðri, rauðsri kvenmannsúlpu; með tagl í hári og kvenmannsveski á öxl. Nú gæti fólk haldið að ég hefði alist upp í e-u Amish-þorpi, að bregðast ókvæða við þessari sjón, en svo er ekki. Almennt kippi ég mér ekkert upp við að sjá dragdrottningar, það getur engin sem komið hefur til Amsterdam, en ég kippi mér upp við það þegar dragdrottningin er kirkjuvörðurinn í sóknarkirkjunni minni, Landakotskirkju! Skrítni maðurinn, sem lítur út eins og Riff Raff úr Rocky Horror, og tekur á móti mér þegar ég mæti í messi gekk um bæinn eins og ekkert væri eðlilegra í kvenmannsfötum, fór í Fröken Reykjavík og keypti sér bland-í-poka. Ég vona að fólk misskilji þetta ekki sem fordóma, því svo er ekki, ég var bara hissa að sjá starfsmann kaþólsku kirkjunnar í drag. Þetta þætti eflaust mikið mál ef um kirkjuvörð Þjóðkirkjunnar væri að ræða, hvað þá kaþólsku kirkjunnar. Persónulega finnst mér maðurinn mega gera það sem hann vill og þetta truflar mig ekki (nema hvað ég á alltaf eftir að sjá hann fyrir mér í kjól þegar ég mæti í messu), en þetta var samt heilmikið sjokk og ég er ekkert viss um að allir líti þetta jafn frjálslyndum augum...

...En allavega, leiðinlegur dagur.

Annars, þó ég sé opinberlega ekki orðinn stúdent, gerði ég mér samt lítið fyrir og skráði mig í HÍ. Skráði ég mig í almenna bókmenntafræð og listfræði, og byrja ég í þeirri síðarnefndu í haust. Námsekiðin sem ég valdi mér eru þessi:

Haust:
05.35.00 Heimspekileg forspjallsvísindi
05.07.01 Aðferðafræði og saga listfræði
05.07.02 Íslensk myndlist 1860-1960
05.07.74 Myndasögur

Vor:
05.40.42 Ritlist: Að skrifa kvikmynd I
05.07.03 Alþjóðleg listasaga fyrri tíma
05.07.60 Íslensk samtímalist 1960-2005
05.40.43 Ritlist: Að skrifa kvikmynd II
05.07.71 Orð í myndlist

Ég er yfirmáta spenntur að hefja nám og drekka í mig fróðleik og listir. Háskólinn á samt örugglega eftir að verða vonbrigði, miðað við hvað ég geri mér miklar vonir. Úfff...farinn að sofa...

::: posted by Hem?llinn at 10:29



laugardagur, maí 01, 2004 :::
 
Jeiijjj!!! Við Schrödinger erum fluttir. Við búum loksins einir og það í æðislegri risíbúð á Bergstaðastræti 45, í 3 mínútna fjarlægð frá Schola Reykjavicensis. Gestir eru ávallt velkomnir í kaffi.

Og fyrir þá sem ekki vita er Árelíus Schrödinger kötturinn minn. Hann er skrýtinn. Hann sefur í vaskinum og talar meira en ég. Stundum held ég að hann sé maður undir álögum. Hann horfir oft þannig á mig.

Mig dreymdi Rauf Denkas. Hann birtist mér í draumi og sagði að það yrði spurt um hann á söguprófinu. Hann laug. Helvítis Tyrkir!

::: posted by Hem?llinn at 00:19



fimmtudagur, mars 18, 2004 :::
 
ÉG hef ekki tjáð mig opinberlega síðan í jólamánuði síðasta árs. Ég vara við breytingum þar á bæ, því Hemúllinn hefur skoðanir og hann er að springa af löngun yfir að deila þeim með umheiminum!

::: posted by Hem?llinn at 22:53



föstudagur, desember 19, 2003 :::
 
Eg er a skrifa thetta a internetkioski i London. Thetta er e-s konar tikallasimi med netinu, snidugt. Thad sem er ekki snidugt er thad ad eg tharf ad hanga her einn a flugvelli i 12 tima yfir nott svo eg komist til Bologna. Thad er verid ad loka ollu her, eg er threyttur en ma ekki sofna og va a borda hrikalega slaeman mat a pub sem heitir O'Neill's. Breskt kjot er bara vont og bretar tala ekki ensku. Eg er buinn ad vera her i 3 tima og er farid ad hundleidast og eg thaf ad meika 9 i vidbot, svo 2 tima flug, leigubil og lest i adra 2 tima. Harleem!


::: posted by Hem?llinn at 21:14



miðvikudagur, desember 17, 2003 :::
 


"Nessun maggior dolore

che ricordarsi del tempo felice

nella miseria"



::: posted by Hem?llinn at 00:49



mánudagur, desember 15, 2003 :::
 
Getraun 6 er bara rugl en með sama sniði og áður. Hvaða leirskáld ritaði línurnar og hvernig tengist hann mynd a? Hvernig tengist svo textinn mynd c?


"Se fossi domandato "Altri chi v'era?",

tu hai dallato quel di Beccheria

di cui segò Fiorenza la gorgiera."

Getraun 6.a


"Má bjóða þér upp í dans", sagði Dauðinn við mig.
og ég sagði já.



6:8

Getraun 6.c


::: posted by Hem?llinn at 15:21



 
Þessi getraun var kannski of þung, jafn vel fyrir Attila. Textinn var semsé úr Evgín Ónegín eftir Púskín. Tenging textans við neðri myndina er augljós: Myndin er af "coveri" Hvítu plötu Bítlanna sem inniheldur lagið Helter Skelter, en textinn inniheldur sömu orð. Tengingin við efri myndina er ekki jafn einföld og greinilega of langsótt: Myndin er myndskreyting við bókina Meistarinn og Margaríta eftir Búlgakov, nánar tiltekið við kaflann Eltingarleikurinn eða Pogonia. Í henni eru mikil áhrif frá Púskín auk þess sem leið persónanna liggur m.a. fram hjá styttu af skáldinu. Langsótt? Já, afar.

::: posted by Hem?llinn at 14:32





Powered by BloggerWeblog Commenting by HaloScan.com